Lífið í Granada...

Áslaug

18.03.2008 20:28:04 / aslaug

Páskavedrid: 20-25 stiga hiti

Mundu mig, ég man tig
um alla tíd og tíma.
Ef tú tarft ad ná í mig,
tá hef ég tennan síma:
+34 691034289

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.03.2008 19:25:00 / aslaug

Borgin sem veturinn gleymdi

Eins og fyrirsögnin gefur til kynna þá hefur veðrið hjá mér verið ansi gott...reyndar ekki sólbaðaveður kannski..ó þó...íslenski mælikvarðinn á það er aðeins öðruvísi en sá spænski...það er allavega svona í kringum 15 stiga hitann hérna á hverjum degi og það í febrúar...úps það er víst kominn mars...

Er enn ekki með internet heima en fannst mér verða að láta heyra aðeins í mér...kannski að allir séu bara hættir að kíkja hérna inn á þessa síðu??

Hérna á Spáni eru kosningar til forseta ríkisins á næsta leyti og snýst því allr um pólítíkina þessa dagana...Rajoy vs. Zapatero...kosningar 9. mars...sá í fréttunum í dag að hægrimaðurinn Rajoy er með stolna kosningabaráttu....held að sami gæjinn stjórni kosningabaráttunni hans  og stjórnaði e-i svipaðri í Mexico...ræðurnar, auglýsingarnar og jafnvel slagorð baráttunnar er nákvæmlega það sama...spurning um að reyna kannski nýjar hugmyndir!!! Zapatero núverandi forseti er samt að ströggla aðeins...var kosinn meðal annars vegna þess að hann lofaði að kalla heim alla spænska hermenn sem voru í Irak sem og hann gerði en nú virðast margir búnir að gleyma þessu...það er víst ekkert annað hægt að gera en að bíða og sjá...

Mun reyna að skrifa oftar hér eftir en lofa samt engu...

Yfir og út


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 20:43:28 / aslaug

Afsakid Hlé

Internetid liggur nidri hjá mér eins og stendur og mun ég tví ekki blogga mikid naestu daga, vona ad tad komist í lag fljótt aftur en get engu lofad.

Annars lítid ad frétta af mér hvort sem er...bara allt tetta sama...


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 19:53:20 / aslaug

Helvítis hurðir

Ég hef alltaf verið frekar varkár og nákvæm svona yfirleitt...en undanfarið virðist sem eitthvað sé að klikka og ég hef á stuttum tíma breyst í óheillakráku og klaufabárð!!

Undanfarnar vikur hef í til dæmis brotið þónokkur glös/diska og missi hluti í gólfið í sí og æ...Aumingja Mido hefur orðið illa fyrir barðinu á þessum klaufaskap mínum, til að nefna dæmi hef ég á stuttum tíma a)hellt sjóðandi vatni á handlegginn á honum þegar ég var að hella vatni af pasta (vil samt auðvitað meina að það hafi verið honum að kenna að setja höndina fyrir!) b)skellt frystiskápshurðinni í hausinn á honum og c)hellt heilu glasi af kraumandi bollasúpu á fótinn á honum...

Ég hef einnig átt í miklum vandræðum með hurðir, geymslan á barnum var læst og  á einhverjum tímapunkti var ég með lykilinn...við þurftum nauðsynlega að komast þar inn en lykilinn var hvergi að finna. Mido ákvað þá að brjóta upp hurðina en það tók nákvæmlega tveggja daga vinnu þar sem hún var útbúin með einhverjum ofurlás með 5 járnpinnum innan á hurðinni (ég og Richie vildum reyndar hringja á lásasmið en eftir að berjast við hurðina í tvo tíma tók þrjóskan í Mido yfirhöndinni og hann þverneitaði að gefast upp)....eftir á kom í ljós að Alim var með lykilinn....hahahha

Og svo í kvöld hljóp ég út því hundarnir voru að verða brjálaðir og fattaði um leið og ég lokaði hurðinni að ég hafði gleymt lyklunum inni...ég skokkaði niður götuna, fann Mido en hann var auðvitað heldur ekki með lykla. Richie er með aukalykla af íbúðinni en hann er staddur í USA...og ég hafði auðvitað líka gleymt símanum svo ég gat heldur ekki hringt í leigusalann!! Fór þá inn á netkaffi og byrjaði að leita að símanúmeri hans á internetinu en hann er auðvitað ekki skráður...eftir mikil tilþrif með kreditkort, pappamöppu og röntgenfilmu náðum við samt að brjótast inn í eigin íbúð mér til mikillar ánægju...

Ráð dagsins frá Nancy Drew: Geymið alltaf röngtenfilmu undir dyramottunni fyrir neyðartilvik

 p.s. Til að svara spurningum lesenda minna þá mun ég koma heim um jólin en hef ekki keypt miða svo nánari upplýsingar get ég ekki gefið eins og stendur

p.p.s Tek enga ábyrgð á framtíðarránum þar sem röntgenfilmur koma við sögu


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 19:54:49 / aslaug

Uppreisn heimilistækjanna og fleira skemmtilegt

Það er kominn vetur, og í kjölfarið kvef og hálsbólga. Þessa dagana kúri ég undir teppi með rafmagnsofninn við hliðina á mér og drekk brandy og irish coffee...já þó það sé sólskin þá er kalt fjallaloftið að ná yfirhöndinni svo núna sef ég með trefil og í dúnsokkum...brrrr

 

Richie er búinn að fjárfesta í íbúð svo hann og Candice eru flutt út og ég og Mido tvö eftir í íbúðinni svo núna þurfum við að leita að nýjum íbúðarfélaga....Richie og Candice skildu samt hundana eftir hjá okkur þar sem þau eru í fríi í USA í mánuð...Poncho og Burma eru líka farin að taka eftir kuldanum og eru núna alltaf að sníkjast til að kúra í sófanum og oftar en ekki vakna ég með þau bæði upp í rúmi hjá mér! Ég reyni að haldi uppi aga en þessar elskur eru snillingar í að halla höfðinu undir flatt og setja upp hvolpaaugun...

 

Annars er það ekki bara kuldinn sem gerir mér lífið leitt þessa dagana. Þessa vikuna ákvaðu heimilistækin að gera uppreisn. Fyrst virkaði ekki espressokannan sem ég keypti á spottprís, svo bilaði ristavélin og núna neitar hraðsuðuketillinn líka samvinnu...of svona til að setja punktinn yfir i-ið þá lekur heitavatnstankurinn svolítið...ískápurinn og örbylgjuofninn eru samt ennþá á mínu bandi og samningaviðræður eru hafnar við uppreisnarseggina! Læt ekki vaða yfir mig svo auðveldlega og til að sýna þeim hver ræður gerðist ég svo heimilisleg að baka brauð í dag...

 

"¡Por qué no te callas!" (af hverju þegiru ekki bara) er aðalsetningin í spænsku þjóðfélagi í dag og heiðurinn af henni á enginn annar en kóngurinn sjálfur, já hann Juan Carlos gat ekki hamið sig þegar Hugo Chávez forseti Venezuela tók ítrekað fram í fyrir spænska forseta  ríkisins Zapatero og kallaði fyrrverandi forseta fasista...og nú geturu fengið þessa fleygu setningu sem hringitón í símann þinn!! Um að gera að græða smá pening á öllu sem gerist...

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 15:37:29 / aslaug

ASLANG frá FINLANDIA les LÍFFRÆÐI

Eins og ég hef sagt ykkur áður hérna á blogginu þá virðast margir spánverjar eiga í vandræðum með að greina á milli ISLANDIA og FINLANDIA, hvort sem það er vegna þess að þessi orð séu keimlík eða lítillar kunnáttu í landafræði veit ég enn ekki....En annað sem veldur miklum miskilningi er að ef að ég skrifa nafnið mitt þá lesa allir u-ið sem n!! Ég hef alltaf haldið því fram að ég hafi alveg frekar læsilega rithönd en það er greinilegt að ég þarf að endurskoða það eitthvað...

Annars er það að frétta, eftir margra mánaða langa baráttu við kerfið, sem hefur m.a. innifalið óteljandi ferðir á hinar ýmsu skrifstofur háskólans, bréf og símtöl til þónokkra ráðuneyta bæði á Íslandi og Spáni, ferð til Madrid til að fara á enn fleiri skrifstofur og ENDALAUSA pappísvinnu og misvísandi og/eða rangar upplýsingar frá fólkinu sem fær borgað fyrir að veita upplýsingar, að ég hef loksins náð að skrá mig í háskólann...og það í líffræði í þetta sinn...

Já núna er bara að hlaupa út í búð og eyða nokkrum tugum þúsunda í bækur og byrja að stúdera...er alltaf bara í tímum seint á daginn/kvöldin, það er sko ekkert hætt kl 17 hér á bæ, neinei ég er oft í tímum til kl 21 á kvöldin skal ég segja ykkur...ég hef nú aldrei verið mikið fyrir að mæta snemma á morgnana en fyrr má nú vera...

Hérna er enn í kringum 20°stiga hiti á daginn en miklar rigningar hafa verið að hrjá landann undanfarið (og ég sem hélt að suður-spánn ætti í miklum vandræðum vegna þurrka)...Granada hefur nú ekki séð mikið af þessum veðurofsa en það voru nú samt þrumur og eldingar í alla nótt og rigndi eins og sjálft syndaflóðið væri í aðsigi...en austurströndin hefur verið eins og eitt stórt náttúruhamfarasvæði og allar ár flætt yfir bakka sína með hörmulegum afleiðingum...á hverju kvöldi eru nýjar myndir í fréttunum af húsum þar sem vatnshæðin hefur náð 3 metrum innandyra, tugir bíla synda eftir götunum og veðurguðirnir hafa hrifsað til sín nokkur mannslíf...hafði aldrei hugsað mikið út í það að það væri hægt að drukkna inn í sínu eigin húsi sitjandi á sófanum :cry:

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 20:18:17 / aslaug

Kominn tími á nýja færslu?? Og myndir af krúsímús....

Ef þið hafið fylgst með fréttum nýlega vitiði kannski að það hafa verið miklar rigningar hérna á Spáni...Ég sat heima hjá mér og hló að óheppna fólkinu í kvöldfréttunum sem þurfti að vaða vatnsstraumana til að komast leiðar sinnar....þangað til að hinn eina dag sem rigndi í Granada þurfti ég nauðsynlega að útréttast og neyddist sjálf til að labba heim í ökklaháum vatnsflaumi!!! En þó að við hérna í Granada höfum mest megnis sloppið við úrhellið þá er ekki hægt að segja annað en að haustið sé farið að gera vart við sig...ok það er ennþá yfir 20°C stiga hiti en eftir að lifa við 40° í lengri tíma þá eru 23°bara voða kalt...

Núna er komið heilt ár síðan ég flutti til Spánar og get ekki sagt annað en að ég kunni vel við lífið hérna á íberíuskaganum...það eru samt ótrúlegustu hlutir sem mér fannst svo sjálfsagðir heima að ég hugsaði aldrei út í það...vinir mínir vildu að ég eldaði íslenskan mat og mér datt auðvitað fyrst í hug að elda lambalæri með öllu tilheyrandi...en síðan fann ég hvergi sósulit og gat ekki hugsað mér að gera brúna sósu sem væri eiginlega ekki brún!! Og svo ætlaði ég að gera eplaköku fyrir afmæli vinar míns en allir búðarstarfsmenn horfðu á mig eins og ég væri klikkuð þegar ég spurði hvort þeir seldu marsipan....og svo auðvitað sýrður rjómi sem ég hef aðeins fundið í einni búð!! Og þetta á ekki bara við matarbúðir...bókabúðir selja auðvitað bara bækur, og ritfangabúðir bara ritföng...o.s.frv.....að vissu leyti finnst mér litlu sérhæfðu búðirnar í anda kaupmannsins á horninu voða sjarmerandi en stundum vildi ég bara fara á einn stað til að kaupa allt sem ég þarf...en ég held víst bara áfram að fara í grænmetis-og ávaxtabúðina, fiskbúðina, kjötbúðina og allar hinar búðirnar....og á endanum fæ ég allt sem ég vil...

Annars er lítið að frétta, erum voða ánægð í nýju íbúðinni...erum 4 hérna, Richie og Candice og ég og Mido...Nenntum aldrei að gera neitt huggulegt í hinni íbúðinni því hún var lítil og illa skipulögð en erum núna alveg að missa okkur í að vera heimilisleg, eldum dýrindis-þriggja-rétta-máltíðir á hverjum degi og höfuð það huggulegt í rúmgóðu stofunni okkar...með hundunum tveimur auðvitað...Poncho og Burma kunna líka voða vel við sig hérna...

Ég er búin að vera að æfa mig á gítarinn undanfarna daga eftir að horfa á hann svo mánuðum skiptir að bíða eftir því að ég vakni einn daginn sem gítarsnillingur...er núna alltaf að pína Richie til að kenna mér e-ð nýtt og get núna spilað hvorki meira né minna en 3 lög....og er svo aum í fingurgómunum að ég hef misst snertiskyn í vinstrihandarfingrunum...en minni sjálfan mig reglulega á: "þolinmæði þrautir vinnur allar" og "enginn verður óbarinn biskup"....

Jæja þá er þetta komið gott í bili, hef sett inn myndaalbúm hérna á síðunni með myndum af prinsessunni, a.k.a fallegasta barn í heimi....

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 21:58:44 / aslaug

Minnsta lúsin fædd

Í dag varð ég formlega móðursystir

Steinunn Hilda Liorsdóttir fæddist í dag 6. september, aðeins fyrr en áætlað var en henni greinilega lá mikið á að komast í heiminn. Litla lúsin er 2.8kg á þyngd og 51 cm á lengd með kolbikasvart hár, eða svo er mér sagt. Er ennþá að bíða eftir myndum svo ég verð bara að taka nýbakaða foreldra trúanlega í þessum málum. Allir við góða heilsu og ánægðir með lífið.

Það er algjörlega ömurlegt að litla lúsin mín sé í USA svo ég get ekki farið í heimsókn að knúsa hana.

Sendi bara knús og kossa með hugarorkunni yfir hafið, hamingjuóskir til foreldranna og ömmu og afa og allra sem hafa beðið í óþreyju eftir að fá svona lítið kríli í familíuna.

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 13:06:24 / aslaug

Íbúðarleit

mér hafa borist kvartanir um blogg-leti...svo ég ákvað að skrifa nokkrar línur

 Undanfarið hef ég ekki haft internetsamband heima og frá litlu að segja svo færslunum hefur ´fækkað umtalsvert....

Lítið að frétta héðan, erum búin að vera að leita að nýrri íbúð, ætti ekki svo erfitt en við höfum mjög ákveðnar skoðanir á hvernig hið nýja heimili ætti að vera, í þessu hverfi, á þessu verðbili, með svona innbúi o.s.frv......fundum íbúð  í fyrradag sem passaði, vorum búin að ákveða að hitta eigandann kl 18.30 til að ná í lyklana, borga fyrsta mánuðinn og allt það...kl 18.15 hringdi hún svo og sagði "sorry ég ætla ekki að leigja ykkur íbúðina blablabla"....einstaklega slæmt framferði finnst mér....en sem betur fer fundum við aðra íbúð, er að fara á eftir að sækja lyklana og vona bara að það gangi allt eftir....

Og þá vonandi kemst í stöðugt netsamband aftur og get haldið áfram að skrifa um ekki neitt

þangað til næst

besos,áslaug


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 16:24:19 / aslaug

Afmælisplön

Núna er ég orðin enn einu árinu eldri, 23 ára gömul, það er svo sem allt í lagi en ég er búin að ákveða að þegar ég verð 25 ára ætla ég að hætta að eldast. Allavega að vera 25 í svona 10 ár til að klára öll ferðalögin og námið og svo get ég byrjað að eldast aftur!! 

 Annars er ég að reyna að harka af mér flensu, vaknaði í morgun með hita og hálsbólgu sem er frekar fúlt. Svo er grillpartýið sem við vorum að plana eiginlega ekki að ganga upp. Planið var semsagt að fara öll til Mojácar í dag sem er við ströndina og grilla í húsi foreldra Richie´s og fara svo á laugardaginn á Creamfields sem er tónlistarhátíð þarna rétt hjá. Vegna þess að það er ágúst og festival rétt hjá þá er auðvitað ekki hægt að fá gistingu neinstaðar...ég get auðvitað gist hjá Richie en  það eru um 20 manns að koma með okkur svo að ég býst við að það sé ekki annað í málinu en að djamma fram á morgun og sofa svo á ströndinni!! 

Núna er planið svona: fara og borða á veitingastaðnum sem Alim vinnur á, djamma fram á morgun, sofa á ströndinni, jafnvel grilla á morgun í staðinn og fara svo beinustu leið á Creamfields.... 

Annars er ég víst að missa að Hagaskóla-reunioni sem er frekar fúlt...svo mikið af fólki sem ég hef varla séð síðan í þá gömlu góðu daga (þ.e.a.s. áður en ég byrjaði að grána:lol: )- bið bara að heilsa öllum þar og mun bíða eftir skýrlsu frá mínu fólki um hver sé að gera hvað í lífinu o.s.frv.

 Koss og knús til allra

Afmælisbarnið 

p.s. Getur maður alltaf kallað sig afmælisBARN, sama hversu gamall maður verður?


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 18:06:42 / aslaug

Ég er ekki hætt að blogga sko...

Ég veit ég var búin að gefa loforð um tíðari blogg og skemmtilegri sögur en....

Í stjörnuspánni minni í dag stóð "Það góða við þig er að þú bíður ekki alltaf fram á seinustu stundu með að framkvæma hlutina."- múhahahahhaha

Annars er það að frétta að Sigrún systir kom í heimsókn, hún náði bara að stoppa frá mið til sun vegna vinnunnar en það var gaman að sjá hana samt - kom kannski ekki alveg á rétta tímanum til að sjá líf mitt í Granada í réttu ljósi þar sem ég er ennþá í íbúðinni hjá Richie (semsagt með allt mitt hafurtask í ferðatöskum) og allir í borginni hafa flúið hitann svo það er lítið að gera á barnum þessa dagana....já hitinn hefur verið i kringum 42-44°C síðustu daga - ég er orðin nokkuð vön hitanum svo ég læt þetta ekki á mig fá en ofuríslendingurinn Sigrún var ekki alveg að fíla þennan hita...

Þrátt fyrir lítinn tíma náðum við að gera ýmislega, t.d. labba um alla borgina, sjá La Alhambra og flamenco. fara upp í lítið þorp fyrir utan borgina í grillveislu og fara til Malaga á ströndina og Picasso-safnið....og svo auðvitað versla svolítið og fara út að borða....við náðum auðvitað að brenna í sólinni, sérstaklega ég samt en er handviss um að roðinn eigi eftir að breytast í fallega brúnku...ýmsir meira segja búnir að hafa orð á því að ég sé orðin soldið brún (allavega minna blá...)

Annars eru ekki bara gleðifréttir úr þessari heimsókn, Sigrún þurfti endilega að bregða fyrir sig arnaraugum og viti menn...hún fann mitt fyrsta gráa hár....og ég sem er kornung!! Sigrúnu fannst þetta auðvitað mjög spaugilegt en ég get ekki sagt það sama...jæja ég verð víst að byrja að lita á mér hárið bráðum býst ég við...


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 00:02:24 / aslaug

Hiti og moskítóflugur

Jæja ég er komin aftur til Granada, hérna er ofurheitt, 37°C í dag og við erum öll frekar orkulaus í þessum hita....og svo eru moskítóflugurnar farnar að gera mér lífið leitt...

Annars er ekki mikið að frétta, bara að vinna á barnum og svona....

Núna er Candice, sem var að læra með mér fyrir jól, komin aftur til Spánar og héldum við upp á það í dag...við elduðum dýrindismáltíð og drukkum kampavín og nutum lífsins, þar til hitinn var alveg að fara með okkur og ekkert annað að gera en taka siestu...


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 22:29:53 / aslaug

Surprise...

Ég er mætt...aftur...til Íslands...í stutt stopp

Þeim sem mér þykir vænt um mega hafa samband við mig í heimasímann...gleymdi íslenska gsm-kortinu úti...

 Hasta ahora

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 21:41:03 / aslaug

Í fréttum er þetta helst...

Eitthvað verið slöpp við að blogga undanfarið, mun reyna að bæta úr því...

Já margt hefur á daga mína drifið undanfarnar vikur...

Um mánaðarmótin síðustu stökk ég upp í flugvél í boði bestu elstu systur minnar og hennar ektamaka og spókaði mig í Barcelona með þeim (og bumbubúanum) í nokkra daga. Þar var mikið nautnalíf, þriggja rétta máltíðir á veitingastöðum öll kvöld og rölt um stórborgina í túristagír á daginn. Myndir munu birtast fljótlega en þær eru flestallar bara af Gaudí húsum, enda er ég mikill aðdáandi þanns manns...

Eins og kannski margir vita þá skellti ég mér líka heim á Frónið, sá vini og ættingja og skemmti mér vel. Kvaddi Ömmu Ingu ásamt miklum mannfjölda, enda þekkti amma örugglega alveg helming landsmanna. Sigrún syss útskrifaðist sem kandídat og var haldið upp á það með glæsibrag. Myndir frá þeirri veislu munu einnig birtast fljótlega...

Já og svo flutti ég líka í nýja íbúð í byrjun mánaðarins...ætlunin var að leigja með vini mínum Mido þar í æðislegri íbúð með risastórri terraza á þakinu..en þrátt fyrir munnlegt samþykki þá sveik leigusalinn okkur og ákvað að leigja dóttur sinni íbúðina. Þar sem ekki var búið að skrifa undir leigusamning þá urðum við að gjöra svo vel og yfirgefa íbúðina...og það strax. Ég pakkaði öllu mínu hafurtaski og þegar ég kom til baka frá Íslandi var Mido búinn að flytja allt mitt dót og sitt og erum við nú upp á velvild vina komin...sem betur fer eigum við góða vini...ég er nú að leita mér að íbúð og eins gott að það gangi vel því Richie og Alim sem ég gisti hjá núna þurfa að rýma sína íbúð um mánaðarmótin næstu!

Jæja ég ætti eiginlega að vera að vinna svo þetta verður að duga í bili...

Koss og knús til allra


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 22:26:04 / aslaug

Amma Inga 1919-2007

Elsku amma er farin á vit feðranna, þetta var uppáhaldslagið hennar sem við barnabörnin sungum ósjaldan fyrir gesti á Lynghaganum...

Maístjarnan

Ó hve létt er þitt skóhljóð
ó hve leingi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjörnu,
eina stjörnu sem skín,
og nú loks ertu komin,
þú ert komin til mín.

Það eru erfiðir tímar,
það er atvinnuþref,
ég hef ekkert að bjóða,
ekki ögn sem ég gef,
nema von mína og líf mitt
hvort ég vaki eða sef,
þetta eitt sem þú gafst mér
það er alt sem ég hef.

En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns,
og á morgun skín maísól,
það er maísólin hans,
það er maísólin okkar,
okkar einíngarbands,
fyrir þér ber ég fána
þessa framtíðarlands.

       Jón Ásgeirsson / Halldór K. Laxness

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 19114
Dagsetning
27. janúar 2012